Færsluflokkur: Dægurmál

Ekki ESB

Af hverju ættum við að ganga í ESB? Hver yrði ávinningur okkar? Ég er persónulega á móti því að við förum inn í ESB. Ég held að það sem við eigum verði hirt af okkur og við fengjum ekkert í staðinn. Við yrðum eins og leiguliðar í eigin landi. Núna  eigum við  fiskinn, orkulindir, olíu (væntanlega) og fl. Við erum núna örvæntingarfull og leitum ráða og er ESB leiðin ein af þeim. Í dag er fólk reitt út í stjórnvöld og mótmælir sem er bara gott mál en ef við göngum í ESB förum við þá til Brussel til að mótmæla?

Kæru nýju bloggvinir

Af einhverri ástæðu ákvað ég sl. sumar að eiga enga bloggvini. Nú hef ég ákveðið í kvöld að söðla um og fara að vera virk í þessu bloggi (ég hef verið dugleg að kommenta á öðrum bloggum) . Góð kona bauð mér að vera bloggvinur og ég hugsaði why not. Siðan fór ég sjálf af stað og óskaði bloggvináttu þeirra sem mér hugnaðist. Ekki hafa allir  svarað ennþá en ég þakka þeim sem hafa svarað því þið megið vita að ég vil ekki alla sem mína bloggvini. Það er ekki illa meint en ég vil málefnalega umræðu, ekkert bull og ekki þurfa allir að vera sammála þá er ekkert gaman. Og engan Jákór takk. Svo kæru bloggvinir ég vona að við eigum eftir að eiga ánægjuleg samskipti.

Einelti

Þetta kalla ég einelti af verstu sort, að ráðast gegn einum manni. Ungur nemur gamall temur. Er það svona sem þið alið börn ykkur upp. Engin furða þó einelti sé vandamál á Íslandi.  Held að við Íslendingar ættum að virkja kraft okkar í  mótmæli gegn Breskum ráðamönnum. Allavega er ég búin að ákveða að ég ætla ekki að kaupa breskar vörur. Ég vil ekki styðja land sem kallar okkur terrorista.
mbl.is Mótmæla Davíð Oddssyni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Misskilningur

Héldu menn virkilega að bresk stjórnmálavöld fylgdust með íslenska þættinum Kastljósi á hverju kvöldi með túlk sér við hlið? Hæpið. En menn voru fljótir að láta stór orð falla hér á blogginu í dag. Alheimskreppan er Davíð að kenna er það ekki bara einfaldlegasta lausnin. Getur svo ekki verið að einhver misskilningur hafi átt sér stað á milli fjármálaráðherra Íslands og Bretlands. Eftir fréttum að dæma þá á Landsbankinn eigur á móti þessum innistæðum á reikningum Icesave í Bretlandi.
mbl.is Samtal við Árna réð úrslitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjármálaráðgjöf

Allir að mæta á morgun http://www.glitnir.is/um-glitni/atburdir/fjarmalafundur/

Fræðist um hvernig þið eigið að umgangast fjármuni ykkar í boði góðra ráðgjafa með reynslu á fjármálasviði. Fyrirtæki sem er annt um hvernig fer fyrir heimilum ykkar. Hvar eigi að spara og hvar tækifærin liggja. Um allt þetta færð þú góð ráð, því þeir tala af reynslunni.

 


Velkomin

Ég ákvað það strax að ég ætðaði ekki að eiga neina boggvini (hef neitað mörgum, en samt allt í góðu). Ekki af því að ég að sé á móti þeim heldur af því að ég hef ekki tíma til að sinna þeim. Mér finnst gott að kíkja á áhugaverð blogg annað slagið og svara á þeim sem mér finnst svaraverð. Þeir sem líta hérna inn, megi Guð vera með ykkur, hann elskar alla, já líka þig!

Að hlíta dómi

Ég held að hlíta sé örugglega með Y hlýta komið af að hljóta, nema ég sé svona vitlaus.
mbl.is Bush segist hlíta dómi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höldum áfram mótmælum

Stöndum saman látum ekki valta yfir okkur!!! Bílstjórar allra bíla mótmælum!


Alló

Já ég veit það, ég byrjaði á bloggi hér áður fyrr annarstaðar en nennti því ekki. Langar að prufa Moggabloggið  hér er svo margt að gerast. Langar að taka þátt i því. Prufa 1

« Fyrri síða

Um bloggið

Veröld Sólveigar

Höfundur

Sólveig Þóra Jónsdóttir
Sólveig Þóra Jónsdóttir

Tilverustigið á jörðinni er mér eilíf ráðgáta

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...939_sxefn-s
  • Sara Lillý
  • Sara Lillý
  • Sara Lillý
  • Sólveig og Helgi 1961

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 450

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband