Minn flokkur fékk þó 27.3% ekki slæmt

Þrátt fyrir áróður fjölmiðla fékk Sjálfstæðisflokkur þó þessi 27.3% sem sýnir að fólk er ekki algjörlega heilaþvegið af bulli fjölmiðla frá því að hrunið varð. Ég sé nú ekki að Samfylkingin sé að bæta svo mikið við sig og með VG þá eru þetta mjög tæpur meirihluti. Ef Samfylking og VG fara saman þá spái ég þeim ca 1 ári áður en allt springur. Vel á minnst ég hef ekkert heyrt hvað flokkarnir ætla að gera í okkar efnahagsmálum, bara umræður um ESB. Við þurfum að fá einhverjar úrlausnir í okkar efnahagsmálum núna!
mbl.is Nýtt Alþingi Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

23,7% meinaru... rétt skal vera rétt!

Karitas (IP-tala skráð) 26.4.2009 kl. 17:07

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Ég fann nú fyrir hruninu á eigin skinni. Kanski smámál fyrir aðra

Finnur Bárðarson, 26.4.2009 kl. 17:15

3 Smámynd: Sólveig Þóra Jónsdóttir

Já rétt skal vera rétt 23.7% var það. Það er bara einfaldlega ekki hægt að setja samasemmerki á milli hrunsins og Sjálfstæðisflokksins  þar sem að sömu hlutir eru að gerast um heim allan. Og ekki held ég að allir fjárglæframennirnir hafi verið sjálfstæðismenn. Menn finna mismikið fyrir hruninu fer sjálfsagt eftir því hve eyðslan hafi verið mikil eða röngum fjárfestingum. Kreppan hefði komið sama hver hefði verið við völd.

Sólveig Þóra Jónsdóttir, 26.4.2009 kl. 21:31

4 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl mín kæra

Ég skilaði auðu. Gat alls ekki hugsað mér að kjósa Sjálfstæðisflokkinn miðað við það sem hefur gerst innan veggja þeirra. Gat alls ekki kosið Samfylkinguna vegna ESB mála en ég er algjörlega á móti inngöngu í ESB.

Guð veri með þér og þínum

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 26.4.2009 kl. 22:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Veröld Sólveigar

Höfundur

Sólveig Þóra Jónsdóttir
Sólveig Þóra Jónsdóttir

Tilverustigið á jörðinni er mér eilíf ráðgáta

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...939_sxefn-s
  • Sara Lillý
  • Sara Lillý
  • Sara Lillý
  • Sólveig og Helgi 1961

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 461

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband